Hej allihopa...

Sjana

16.06.2007 19:38:09 / sjana

tæm át

þetta blog mun liggja í dvala í sumar. Í haust mun ég svo sjá til með framhaldið! :)

Njótið sumarsins


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 21:40:29 / sjana

Var einhver að tala um brúnkukrem?

Ekki einu sinni Britney Spears gæti komið með svona gott "koma tilbaka" (comeback) ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 20:15:10 / sjana

svenska flikkan sjana sjikk

Er búin að vera að skoða bloggfærslur frá sverige og er með fráhvarfseinkenni.

Mig langar í sænskt þema partý....schnilld.

Líka Eurovision-partý

 

Svo fór ég að hlægja því ég var búin að gleyma að húsið mitt hét rapphænan:D 


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 13:54:44 / sjana

Gleðifréttir

Kæru vinir til sjávar og sveitar

Ég er með svakalega góðar fréttir, alveg magnaðar. Ég brosi svo stórt þegar ég hugsa um þetta og fæ fiðring í magann. Þið sem þekkið mig vel vitið hversu spennandi og hamingjusamt þetta er fyrir mig og hugsið kannski : Loksins ætlaru að drífa í þessu!!!

tatatamm ........ég er að fara í förðunarnám í haust!!!!!!!!!!!!!! Ding!!!!!! :D:D:D:D:D

 

Jesús Pétur, ég get ekki beðið, þetta hefur verið ástríða hjá mér síðan við fæðingu (nánast) ég kom út úr maganum á mömmu með augnskugga í hendinni.....nei ok ekki alveg. ;)

hihihihi ég er svo spennt að ég get ekki beðið8)

Eigið góðan dag blúndurnar mínar!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 14:27:05 / sjana

Leti

Afsakið bloggletina sem hrjáir mig núna, einnig er ég að glíma við námsleiða og athyglisbrest og einbeitingarskort. Ég vildi að ég væri eins og tölva þó ekki mín því hún er á barmi geðbilunar, því akkúrat núna gæti ég þá látið "strauja" mig og látið setja upp nýja orku, einbeitingu, skólagleði, blogggleði (vó það eru 3 g í röð í þessu orði), hreysti, glænýtt minni og svo framvegis. Það væri ansi töff.

Ég ætti kannski að koma með Comeback frá Sverige?

P.S. Þið eruð ekki að standa ykkur í kommentunum og hananú.


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 18:19:16 / sjana

pax

http://www.youtube.com/watch?v=DCqvYaxJv24&eurl=http%3A%2F%2Fvideo%2Efeber%2Ese%2Ffeber%2F

Þeir eru allir Rakelpax ;)  múhahahaa


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 10:13:33 / sjana

.

Fór á tónleika á sunnudaginn með Emilie Simone, fínir tónleikar!

Fór ekki í Kolaportið á laugardaginn vegna þess að ég náði ekki að borga í tæka tíð og komst þá ekki að eeeeen mun fara núna á laugardaginn 10.mars. Vill einhver vera memm??????? Koma svo ef þið eruð með drasl úr eldhúsinu eða gömul föt sem þið hafið ekki notað í lengri tima, gamlar körfuboltamyndir þá er gott að losna við það og fá smá pening fyrir það. Þetta er mín síðasta ferð í langan tíma. Fullt af flottum fötum, skóm og alls konar dóti;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 16:47:19 / sjana

Hereford

Hvernig má þekkja útlendinga(þá sérstaklega ameríkana)  frá íslendingum á veitingastöðum?

 

Jú ég skellti mér á Hereford í gær bara svona af því að það var mánudagur8)  Ég hef það svona fyrir venju að fara úr skóla-vinnu-fötum þegar ég fer eitthvað fínna en McDonalds og fer í eitthvað aðeins betra. Hvort sem er um helgi eða á mánudegi. But nóóóó þetta á ekki við um útlendinga takk fyrir bingó. Þeir eru bara í sínum sveittu stuttermabolum merktum Marel eða einhvern fjandann,gulrótargallabuxunum og í hvítu strigaskónum8|. Hvernig væri nú að fara í betri bol allavega eða úr joggingskónum? Þarna var að vísu líka íslensk stelpa sem var með derhúfu? Mér var nú kennt að taka að ofan þegar að inn væri komið því annað væri dónalegt. Allavega hélt ég að Hereford væri svona frekar fínn staður en í byrjun leið mér pínu eins og ég væri á Salatbar Eika en ég náði að hrinsta það af mér því maturinn var delisíjös...slúrp.;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 11:55:46 / sjana

Rúm.is

Ameríska Queen size rúmið mitt er til sölu með eggjadýnu. Fáránlega gott rúm. Fallegt rúmteppi úr betra bak fylgir með. Kjarakaup, einungis 30.000. Látið þetta berast. Hafið samband ef ykkur vantar málin.

 

Einnig er til sölu:

Mjög sæt viðar kommóða með 10 skúffum á 2500 krónur. 

 

2X svartir leður sófastólar. 2000 krónur stykkið....

 

kooooommmaaaaa svoooooo 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 13:14:09 / sjana

Bissí krissí

Já þið hreinlega rifust um skóna, aldrei hefur síminn hringt svona mikið og skórnir fóru á 25.000 krónur! NOOOT

Það er nóg að gera og skemmtilegir tímar framundan, eins og t.d:

 

Pabbinn á fimmtudaginn.

Rakel Sif afmæli á föstudaginn.

Bústaður 23. og 24.febrúar.

6.mánaða afmæli 26.febrúar8)

Kolaportið once again 3.mars

Inga Lísa litla skott 5.ára 11. mars

Erla 25.ára 17.mars

Árshátíð Kaupþings 17.mars

Klara afmæli 21.mars

Ingunn 25.ára 27.mars

Tónleikar með Blonde Readhead 5.apríl

Védís og Kolla afmæli 7.apríl

Eva sett mit das baby 7.apríl

Tónleikar með Peter, Björn och John 12.apríl

Krissa 25.ára 19.apríl

.....og þá kæru vinir er 1 vika eftir af þessari önn áður en prófin byrja! Halelúja

 

Svo þegar prófin eru búin er ég búin að panta mér ferð til kaupmannahafnar og Svíþjóðar. :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 13:43:18 / sjana

Febrúar-uppboð!

Þessi dásamlegu stígvél ætla ég að selja vegna þess að þau eru of lítil á mig og aðeins of hælahá. Þau eru númer 38. Mjög vel farin:D

Ég ætla að hafa smá uppboð ef einhver hefur áhuga á þessum geggjuðu stígvélum og við byrjum í 5000 krónum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 18:26:59 / sjana

Þemalag?

Er Put your hand up in the air þemalag handboltans? 8) 

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 12:49:53 / sjana

Maður lifir ekki AF fornri frægð, eins og Helga benti mér á;-)

Ég vil byrja á að þakka öllum sem komu í afmælið mitt og fyrir allar gjafirnar og kveðjurnar og yndislegheit í minn garð. Ég á augljóslega mikið af æðislegum vinum:D
Takk fyrir takk.

Er einhver að fara til US and A? bráðlega? Eða þekkir einhver flugfreyju sem getur sjoppað örlítið fyrir mig? enívonn?

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 08:55:47 / sjana

vívívívíví

Its mæ böööþþþþdei8)

Hlakka til að sjá ykkur í kvöld:haha:

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Myspace
Ýmislegt